Uppbygging Borgarlínu við Hlemmtorg

Á næstu dögum hefjast framkvæmdir við næsta áfanga endurgerðar Hlemms, sem felur í sér uppbyggingu Borgarlínu um Hlemmtorg, nýja stoppistöð, endurgerð gatnamóta og göturýmis, ásamt uppbyggingu nýs torgsvæðis. Gert er ráð fyrir að þessum áfanga framkv

Uppbygging Borgarlínu við Hlemmtorg
Mynd: https://pxhere.com/ · / CC0 / Pexels

Á næstu dögum hefjast framkvæmdir við næsta áfanga endurgerðar Hlemms, sem felur í sér uppbyggingu Borgarlínu um Hlemmtorg, nýja stoppistöð, endurgerð gatnamóta og göturýmis, ásamt uppbyggingu nýs torgsvæðis. Gert er ráð fyrir að þessum áfanga framkvæmda ljúki í lok árs 2027. Samið hefur verið við Gröfu og Grjót um framkvæmd áfangans, sem er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu. Markmiðið er að skapa aðlaðandi, öruggt og gönguvænt borgarrými með góðri aðstöðu fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi vegfarendur. Akreinar um sjálft torgið verða eingöngu ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum, sem mun auka rými fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og gera umhverfið rólegra og öruggara.

Í framkvæmdunum verða gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu endurgerð ásamt götukafla á Snorrabraut, frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Leið Borgarlínu um torgsvæði Hlemms verður lögð og stoppistöð Borgarlínu sett upp á svæðinu. Framkvæmdirnar snúa ekki eingöngu að því sem sést á yfirborðinu, því samhliða uppbyggingu Borgarlínu og endurgerð göturýmis verða mikilvægar lagnir og aðrir innviðir neðanjarðar endurnýjaðir. Þar á meðal eru fráveitulagnir, vatns- og hitaveitulagnir, raflagnir, fjarskiptalagnir og lagnir fyrir umferðarljós. Betri Samgöngur, Veitur og Reykjavíkurborg vinna saman að framkvæmdunum og endurnýjun innviða á svæðinu.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarlínan

Heimild: Borgarlínan

Deila Facebook X LinkedIn