Unnið við holuviðgerðir á Akrafjallsvegi í dag
Fyrirtækið Colas vinnur í dag, mánudaginn 31. ágúst, að holuviðgerðum á Akrafjallsvegi. Búast má við minniháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir.
Fyrirtækið Colas vinnur í dag, mánudaginn 31. ágúst, að holuviðgerðum á Akrafjallsvegi. Framkvæmdir fara fram frá klukkan 9 til 16.
Áætlað er að umferð verði handstýrt á þeim köflum þar sem viðgerðir fara fram og verður hraði takmarkaður. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir á framkvæmdasvæðinu.
Búast má við minniháttar umferðartöfum á meðan á framkvæmdum stendur.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn