Undanþága veitt fyrir næturvinnu við Fossvogsbrú
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur veitt Ístaki hf. undanþágu til næturvinnu vegna framkvæmda við smíði Fossvogsbrúar, sem gerir verktaka kleift að vinna við nauðsynlega verkþætti án þess að skerða rekstur Reykjavíkurflugvallar. Undanþága
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur veitt Ístaki hf. undanþágu til næturvinnu vegna framkvæmda við smíði Fossvogsbrúar, sem gerir verktaka kleift að vinna við nauðsynlega verkþætti án þess að skerða rekstur Reykjavíkurflugvallar. Undanþágan nær til framkvæmda á samtals 28 dögum fram til 2. júlí 2026. Ákvörðun ráðuneytisins tryggir að unnt er að halda áfram með vandasama brúarsmíði í Fossvogi.
Undanþágan var veitt að fenginni umsögn heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar og Kópavogs. Hún er bundin skýrum skilyrðum um upplýsingagjöf og hávaðamælingar og móttöku ábendinga frá íbúum. Með undanþágunni skapast svigrúm til að halda verkinu áfram samhliða óskertum rekstri flugvallarins, en smíði Fossvogsbrúar þarf að hluta til að vinna á nóttunni vegna nálægðar við Reykjavíkurflugvöll.
Á næstu vikum verður unnið að mikilvægum verkþáttum við undirstöður brúarinnar, þar á meðal niðurrekstur staura í Fossvogi. Leitast verður við að vinna sem mest á daginn, enda er það vilji bæði verkkaupa og verktaka. Ráðuneytið leggur jafnframt áherslu á að næturvinna verði takmörkuð eins og kostur er. Framkvæmdaaðila ber að mæla hávaða á framkvæmdatíma, miðla niðurstöðum til viðkomandi stjórnvalda og halda úti aðgengilegum upplýsingum fyrir almenning um framgang verksins, mögulegt ónæði og tímasetningar einstakra verkþátta.
Fossvogsbrú er staðsett í hjarta höfuðborgarsvæðisins og er lykilhluti uppbyggingar fyrstu lotu Borgarlínu. Brúin mun tengja suðurhluta höfuðborgarsvæðisins og Reykjavík með nýjum hætti og er ætluð almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsaksturs viðbragðsaðila.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarlínan
Heimild: Borgarlínan