Um 400 íbúar Fjallabyggðar kalla eftir aðgerðum í Héðinsfjarðargöngum
Um 400 íbúar Fjallabyggðar og aðrir vegfarendur hafa skrifað undir lista þar sem kallað er eftir aðgerðum Vegagerðarinnar vegna vatnsleka í Ólafsfjarðarhluta Héðinsfjarðarganga.
Undirskriftarlisti þar sem um 400 íbúar Fjallabyggðar og aðrir vegfarendur kalla eftir aðgerðum Vegagerðarinnar vegna áralangs vatnsleka í Ólafsfjarðarhluta Héðinsfjarðarganga hefur verið lagður fram á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar.
Formaður bæjarráðs tók á móti undirskriftarlistanum frá Hjördísi Hjörleifsdóttur, sem var ein af þeim sem stóðu að söfnuninni. Bæjarstjóra var falið að boða til fundar bæjarráðs.
→ Lesa upprunaleg grein á Trölli
Heimild: Trölli