Tvö tilboð í nýjan Vestfjarðaveg

Tvö tilboð bárust í nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpa- og Gufufjörð á Vestfjörðum. Verkið felur í sér byggingu 210 metra langrar og 25 metra hárrar netbogabrúar með steyptu gólfi yfir Djúpafjörð.

Tvö tilboð í Djúpafjarðarveg
Mynd: needpix.com (CC0)

Tvö tilboð bárust í nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpa- og Gufufjörð á Vestfjörðum. Verkið felur í sér byggingu 210 metra langrar og 25 metra hárrar netbogabrúar með steyptu gólfi yfir Djúpafjörð.

Áætlaður verktakakostnaður var rúmir 2,4 milljarðar króna og verklok voru ráðgerð 1. október 2028. Ístak bauð tæpa sex milljarða í verkið en ÞG verktakar buðu tæpa 3,9 milljarða.

Þessi framkvæmd á sér um 30 ára aðdraganda og er síðasti áfangi lagningar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit. Brúin mun stytta veginn milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um 21,6 kílómetra.

Verkið hefur tafist töluvert frá því framkvæmdir hófust árið 2020. Áætlað var að þeim lyki 2024 og síðan 2026, en fyrr á árinu var áætluðum verklokum enn frestað.

→ Lesa upprunalegu fréttina á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn