Tvö ný hverfi og blásið til sóknar
Reykjanesbær stefnir í mikla uppbyggingu með tveimur nýjum hverfum og vonast til að skapa allt að tvö þúsund ný störf, þar af um þúsund varanleg.
Tvö þúsund ný störf, þar af eitt þúsund varanleg, verða til við uppbyggingu í Reykjanesbæ. Bæjarstjóri segir fjölda tækifæra í bænum og tvö ný hverfi í bígerð.
Þessi áform voru kynnt á atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Bæjarstjóri segir að líklega hafi aldrei verið jafn mikil gróska í atvinnulífi bæjarins. Hátt í 40 atvinnulóðir eru á lausu í bænum.
„Bæði eru kjarnafyrirtækin hér að stækka gríðarlega mikið og svo eru að koma ný tækifæri hérna inn,“ segir Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri í Reykjanesbæ. „Við erum náttúrulega gagnavershöfn Íslands og öll þjónustan í kringum það. Svo er landeldi farið að byggjast hérna upp. Og við erum líka með alla þessa uppbyggingu á flugvallarsvæðinu.“
Og uppbygging kallar á þjónustu. „Lítil og meðalstór þjónustufyrirtæki eru í samkeppnisforskoti séu þau staðsett hér,“ segir Vilhjálmur.
Hann segir að þessi áform og uppbygging muni skapa á annað þúsund störf á uppbyggingartímanum. „Svo mun þetta leiða af sér hátt í þúsund varanleg störf, sú uppbygging sem er hér framundan.“
Nýjum störfum fylgir nýtt fólk og ný heimili og verið er að undirbúa tvö svæði í bænum fyrir úthlutanir lóða fyrir sérbýli. „Þannig að fjölskyldufólk geti komið og byggt sér upp heimili hér,“ segir Vilhjálmur.
Úthlutun hefst snemma á næsta ári og lóðirnar eru annars vegar í Keflavíkurborgum, nýju 300 lóða hverfi nyrst í bænum sem afmarkast af Garðskagavegi, Hringbraut og Heiðarbergi. Hins vegar er um að ræða Suðurbrekkureit á Ásbrú þar sem 200 lóðum verður úthlutað, en það verður fyrsta íbúðauppbyggingin á svæðinu síðan herinn fór.
Nýverið voru byggingarréttargjöld felld niður í Reykjanesbæ með það að markmiði að lækka álögur og byggingarkostnað. „Það er algert grundvallaratriði að draga úr byggingakostnaðin.
Heimild: RÚV