Tunga – deiliskipulag frístundasvæðis F12
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur samþykkt að kynna skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðs deiliskipulags frístundasvæðis F12 í landi Tungu. Svæðið er um 1,5 hektarar ofan Svalbarðseyrar.
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur samþykkt að kynna skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðs deiliskipulags frístundasvæðis F12 í landi Tungu.
Lýsingin tekur til um 1,5 hektara svæðis ofan Svalbarðseyrar, austan Grenivíkurvegar og norðan Valsár. Í Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2025–2037 er svæðið skilgreint sem svæði fyrir frístundabyggð, reitur F12, þar sem heimiluð eru allt að þrjú frístundahús.
Lóðirnar þrjár hafa þegar verið skráðar og með deiliskipulaginu er fyrirhugað að afmarka byggingarreiti innan þeirra, skilgreina fyrirkomulag aðkomu og setja nánari skipulagsskilmála fyrir svæðið.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum við efni lýsingarinnar. Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins og í Skipulagsgátt HMS undir málsnúmeri 1076/2026.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Svalbardsstrandarhreppur
Heimild: Svalbardsstrandarhreppur