Truflanir á afhendingu á köldu vatni á Borgarfirði næstkomandi mánudag.
Framkvæmdir við nýja stofnlögn á Borgarfirði Eystri munu valda truflunum á köldu vatni mánudaginn 24. ágúst. Búast má við allt frá litlum þrýstingi upp í algert vatnsleysi.
Vegna framkvæmda við nýja stofnlögn á Borgarfirði Eystri má búast við truflunum á afhendingu á köldu vatni mánudaginn 24. ágúst.
Vinna hefst um klukkan 10:00 og stendur allan daginn. Hún getur valdið allt frá litlum þrýstingi upp í algert vatnsleysi um tíma.
Í tilkynningu frá HEF kemur fram að Réttarholt, Háteigur, Rafstöð Rarik, Ásgarður, Þórshamar og Vinaminni verði líklega alveg vatnslaus á meðan vinnunni stendur.
Þessi vinna er hluti af endurnýjun vatnslagna í þorpinu og endurbótum á tæknirými við vatnstankinn sem staðið hafa yfir undanfarin ár. Einnig er unnið að því að flýta tengingu á gegnumlýsingartæki sem er hluti af endurnýjun dreifikerfisins.
Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þetta mun valda þorpsbúum og gestum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Múlaþing
Heimild: Múlaþing