Tré og straumur gengur frá hreinsistöðinni

Fasteignafélag Árborgar hefur gert samning við Tré og straum ehf um fullnaðarfrágang nýrrar hreinsistöðvar við Geitanes á bökkum Ölfusár. Uppsteypa burðarvirkis hefur þegar farið fram. Verkið felur í sér fullnaðarfrágang hreinsistöðvarinnar, uppsetn

Tré og straumur gengur frá hreinsistöðinni
Mynd: Mahmut Yılmaz / Pexels

Fasteignafélag Árborgar hefur gert samning við Tré og straum ehf um fullnaðarfrágang nýrrar hreinsistöðvar við Geitanes á bökkum Ölfusár. Uppsteypa burðarvirkis hefur þegar farið fram.

Verkið felur í sér fullnaðarfrágang hreinsistöðvarinnar, uppsetningu vélbúnaðar og lagna, ásamt helstu húskerfum og gönguleiðum innandyra. Einnig er um að ræða allan frágang útveggja, hurða og glugga. Atli Marel Vokes, sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar, og Ólafur F. Leifsson, eigandi Tré og straums, handsöluðu samninginn.

Efla hf verkfræðistofa er ráðgjafi og hönnuður mannvirkisins. Byggingarstjórnun og framkvæmdaeftirlit er í höndum Verkfræðistofu Guðjóns Þ. Sigfússonar ehf. Áætluð verklok eru 30. desember næstkomandi.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska

Heimild: Sunnlenska

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →