Tré og straumur ehf skrifaði undir samning við Fasteignafélag Árborgar slf vegna framkvæmdaverksins „Hreinsistöðin við Geitanes – Fullnaðarfrágangur“
Samningur var undirritaður þann 1. júní 2026 milli Tré og straums ehf og Fasteignafélags Árborgar slf vegna fullnaðarfrágangs hreinsistöðvar frárennslis við Geitanes. Verkefnið felur í sér fullnaðarfrágang hreinsistöðvarinnar, uppsetningu vélbúnaðar
Samningur var undirritaður þann 1. júní 2026 milli Tré og straums ehf og Fasteignafélags Árborgar slf vegna fullnaðarfrágangs hreinsistöðvar frárennslis við Geitanes. Verkefnið felur í sér fullnaðarfrágang hreinsistöðvarinnar, uppsetningu vélbúnaðar og lagna ásamt helstu húskerfum.
Uppsteypa burðarvirkis hefur þegar átt sér stað. Í verkinu verða settar upp gönguleiðir úr heitgalvaníseruðu stáli samkvæmt teikningum, vatnsþétt hurð milli þurrrýmis og votrýmis, lúga og brunastigi. Að utan skal klára allan frágang útveggja, hurða og glugga. Fullnaðarfrágangur töflurýmis er innifalinn ásamt loftræsirými og lífsíu.
Efla hf verkfræðistofa er ráðgjafi og hönnuður mannvirkisins fyrir verkkaupa. Byggingarstjórnun og framkvæmdaeftirlit er unnið af Verkfræðistofu Guðjóns Þ. Sigfússonar ehf. Verklok eru áætluð 30. desember 2026. Við undirritun samningsins voru Atli Marel Vokes, sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar, og Ólafur F. Leifsson, eigandi Tré og straums ehf, viðstaddir.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sveitarfélagið Árborg
Heimild: Sveitarfélagið Árborg