Tilboðin sem bárust voru of há

Ekki verður malbikað frá þjóðveginum niður að bryggjunni á Brjánslæk í sumar eins og til stóð vegna þess að tilboðin sem bárust voru of há.

Tilboðin sem bárust voru of há
Mynd: Arian Fernandez / Pexels

Ekki verður malbikað frá þjóðveginum niður að bryggjunni á Brjánslæk í sumar eins og til stóð. Þetta staðfestir forstöðumaður samskiptadeildar hjá Vegagerðinni.

Ástæða frestunarinnar er sú að tilboðin sem bárust í verkið þóttu of há. Til stendur að bjóða verkið út aftur og malbika á næsta ári. Verkið var sameiginlegt tilboð með sveitarfélögunum en Vegagerðin mun setja þetta upp öðruvísi næst.

→ Lesa á mbl.is

Heimild: mbl.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →