Þyrlupallurinn í Surtsey verður næstum þrefaldaður að stærð
Þyrlupallurinn í Surtsey verður stækkaður töluvert eftir að umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti umsókn Surtseyjarfélagsins þess efnis. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaley
Þyrlupallurinn í Surtsey verður stækkaður töluvert eftir að umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti umsókn Surtseyjarfélagsins þess efnis. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi.Í frétt vefmiðilsins Tíguls segir að ætlunin sé að stækka pallinn úr 36 fermetrum í hundrað í ljósi þess að sérfræðingar Landhelgisgæslunnar telja hann of lítinn fyrir öruggar lendingar núverandi þyrlukosts hennar. Núverandi pallur var settur upp árið 1993.Áætlaður kostnaður er um níu milljónir króna og búist við að fjórir starfsmenn nái að ljúka verkinu á allt að sex dögum.Forsætisráðuneytið hefur samþykkt verkið með skilyrðum um að öll leyfi liggi fyrir. Náttúruverndarstofnun gaf leyfi fyrir verkinu í júlí með ströngum skilyrðum sem ráðuneytið krefst að fylgt verði.Surtsey er friðland í eigu íslenska ríkisins og á heimsminjaskrá UNESCO og því eru sett ströng skilyrði um framkvæmdina.Hreinsa þarf gaumgæfilega allan fatnað, byggingarefni og farangur til að koma í veg fyrir að lífverur, plöntuhlutar eða jarðvegur berist þangað af mannavöldum. Tryggja ber einnig að rask á landslagi og jarðvegi verði sem minnst.Það verður gert þannig að gróður og jarðvegur við jaðra pallsins verður fjarlægður tímabundið og nýttur aftur við frágang. Unnt verður með fremur einföldum hætti að fjarlægja stækkunina og afmá öll ummerki um hana.
Heimild: RÚV