Þurfi að finna nýja leið til að takast á við vexti og verðbólgu
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, gagnrýnir vaxtahækkun Seðlabankans og telur að ákvörðunin standist ekki rökstuðning nefndarinnar. Hann segir að það vanti meiri kraft í leiðsögn bankans varðandi verðbólgu og vexti.
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, telur að peningastefnunefnd Seðlabankans hafi haft góðan rökstuðning fyrir því að halda vöxtum óbreyttum, þrátt fyrir að bankinn hafi hækkað vexti um 0,25 prósentustig í gær.
Peningastefnunefnd rökstuddi hækkunina með spá um aukna verðbólgu á næstu mánuðum, en nefndi einnig mikla óvissu í alþjóðlegum efnahagsmálum og á innlendum vinnumarkaði.
Jón bendir á að ef verðbólga mælist yfir 4,7 prósentum í lok ágúst, opnist heimild í kjarasamningum til að segja þeim upp vegna forsendubrests.
„Það vakti athygli mína að seðlabankinn hafi ákveðið að hækka vexti um 0,25 punkta í ljósi þess hvernig rökstuðningur nefndarinnar var, ef maður les í gegnum hann þá segja þau sjálf að verðbólgan sé að hluta til út af stríðsátökum í Mið-Austurlöndum og gjaldahækkunum hins opinbera. Á sama tíma og undirliggjandi verðbólga hefur haldist stöðug. Mér fannst þau vera með góðan rökstuðning fyrir því að halda vöxtum óbreyttum,“ segir Jón.
Forstjóri Stoða segir að það vanti meiri kraft í leiðsögn Seðlabankans í tengslum við verðbólgu og vexti. Niðurstaða bankans í gær, miðað við rökstuðning peningastefnunefndar, hefði átt að vera óbreyttir vextir.
Jón tók þátt í pallborði á opnum fundi hjá VR í gær um samspil stýrivaxta og verðbólgu, þar sagðist hann upplifa að Seðlabankinn hafi ekki trú á eigin verkefnum.
„Oft á tíðum hefur mér fundist vanta meiri kraft í framsýnu leiðsögnina hjá þeim um að með þeim aðgerðum og markmiðum sem þau hafa gert þá komumst við í mark í verðbólgumarkmiðið. Það hefur oft á tíðum skort trú á eigin verkum hefur mér fundist í gegnum tíðina.“
Háir vextir hafi áhrif á framtíðarvöxt hagkerfisins.
Jón segir að samstarf hins opinbera, vinnumarkaðarins og seðlabankans þurfi til að ná verðbólgu niður.
Heimild: RÚV