Þurfa að fræsa upp kílómetra langt klæðingarlag við Kaldármela

Nýlega lagt klæðingarlag á eins kílómetra kafla Snæfellsvegar við Kaldármela þarf að fræsa upp og leggja að nýju vegna skemmda. Bæjarstjóri Snæfellsbæjar fundaði með Vegagerðinni og segir þá hafa lofað meiri vandvirkni.

Þurfa að fræsa upp kílómetra langt klæðingarlag við Kaldármela
Mynd: Magda Ehlers / Pexels

Nýlega lagt klæðingarlag á um eins kílómetra löngum kafla Snæfellsvegar við Kaldármela þarf að fræsa upp og leggja að nýju eftir að það skemmdist. Bæjarstjóri Snæfellsbæjar fundaði með stjórnendum Vegagerðarinnar og segir þá hafa lofað meiri vandvirkni.

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni var neðra lag klæðingar lagt fimmtudaginn 20. ágúst. Gert var ráð fyrir þurru veðri sólarhring eftir verkið en rigning kom í veg fyrir að hægt væri að sópa umframefni af veginum daginn eftir. Mikil þung umferð í samspili við laust steinefni skemmdi yfirborð vegarins.

Verkið var boðið út í febrúar og var samið við Borgarverk um framkvæmdina. Vinna hófst í maí og er verkið nokkuð á eftir áætlun vegna breytinga á hönnun eftir að framkvæmdir hófust.

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, vakti athygli á málinu í gær og sagði klæðinguna á veginum hafa verið orðna holótta þegar hann átti leið um veginn sunnudaginn eftir að hún var lögð. Hann fundaði í dag með yfirmönnum Vegagerðarinnar á norðvestursvæði ásamt framkvæmdastjórum sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, í Dölum og Borgarbyggð.

„Þeir töluðu um það að þeir hefðu veðurfræðing á sínum snærum. Þeir myndu vera í sambandi við hann þannig að menn myndu reyna að horfa fram í tímann hvað varðar hvort veðurspáin gangi eftir og vanda sig við það að það verði ekki klætt á undan rigningu,“ sagði Kristinn.

„Svo sögðu þeir það líka og við lögðum það líka til framkvæmdastjórnarinnar að til þess að fá betri veg yrði tímabundnum lokunum beitt á meðan verið væri að klæða veginn.“

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn