Þjóðarhöllin á vera klár í janúar 2030
Borgarráð hefur samþykkt verksamning um hönnun og byggingu Þjóðarhallar í Laugardal. Verkið er metið á rúma 16,8 milljarða króna og á höllin að vera tilbúin í janúar 2030.
Borgarráð samþykkti í morgun verksamning milli Þjóðarhallar ehf. og ÍAV hf. um hönnun og byggingu Þjóðarhallar í Laugardal. Samningsupphæðin er rúmir 16,8 milljarðar króna með virðisaukaskatti.
Í sumar gekk Þjóðarhöll ehf. að tilboði Íslenskra aðalverktaka og samstarfsaðila þeirra. Samkvæmt samningnum á höllin að vera tilbúin eigi síðar en 25. janúar 2030 og verður hún með sæti fyrir 8.600 manns.
Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir þetta risastóran áfanga í verkefninu sem hefur tekið fjögur ár. Hann bætir við að nú sé tryggt að Reykjavík sé höfuðborg íþróttanna.
Meðal fyrstu verkefna nýju hallarinna, gangi áformin eftir, er að vera gestgjafi á HM í handbolta árið 2031 ásamt Noregi og Danmörku. Einar segir að það liggi á að byggja vegna þessa. Einn riðill verður spilaður hér á landi og er ný þjóðarhöll grunnforsenda þess að Ísland haldi mótið.
Reykjavíkurborg greiðir 45% af kostnaði, eða 8,7 milljarða króna, en ríkið greiðir 55%.
Í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins segir að það sé mikið fagnaðarefni að loks sé komið að því að gera verksamning um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal, enda hafi aðdragandinn verið langur.
Heimild: RÚV