„Þetta er risastórt mál sem þarf að hugsa hratt“
Knútur Rafn Ármann, eigandi og framkvæmdastjóri Friðheima, hvetur stjórnvöld til að forgangsraða í raforkumálum svo íslensk heimili og fyrirtæki verði ekki undir í samkeppni við erlend gagnaver um græna orku.
Knútur Rafn Ármann, eigandi og framkvæmdastjóri Friðheima, lýsir yfir áhyggjum sínum vegna stöðu raforkumála á Íslandi. Hann bendir á að erlend gagnaver hafi mikinn áhuga á íslenskri grænni orku og því sé mikilvægt að stjórnvöld tryggi að íslensk heimili og smærri fyrirtæki verði ekki útundan í samkeppni um hana. Knútur varar við því að ef ekki verði brugðist rétt við gæti raforkuverð á Íslandi orðið það hæsta í Evrópu, enda sé orka markaðsvara.
Í viðtali á Friðheimum á Hljóðvegi 1 ræddi Hólmfríður María við Knút um starfsemi fyrirtækisins, þar á meðal ræktun, ferðaþjónustu og þær áskoranir sem fylgja garðyrkju á Íslandi. Knútur leggur áherslu á að íslensk græn orka sé eftirsóknarverð og að stjórnvöld þurfi að grípa í taumana til að tryggja að íslensk fyrirtæki verði ekki undir í samkeppni við erlend gagnaver um rafmagn.
„Margir af þeim erlendu gestum sem koma til okkar finnst þetta mjög skrítið að við getum ræktað hér grænmetið allt árið um kring vitandi af því að hér eru langir dimmir og kaldir vetrar. Bara nafnið á landinu okkar, Ísland, það gefur ekki þá vísbendingu,“ segir Knútur. Hann bætir við að nýting náttúruauðlinda eins og jarðhita til upphitunar og grænnar raforku til lýsingar, ásamt bestu gæðum lindarvatns, geri Ísland að kjörlandi fyrir ylrækt. Hann telur að íslensk þjóð eigi að hafa metnað til að nýta þessa kosti til fulls.
Heimild: RÚV