Það þarf meira en hús til að reka skóla

Fjármálaáætlun til 2031 hefur verið samþykkt og nú er unnið að undirbúningi fjárlaga. Mikilvægt er að skoða stöðu framhaldsskólanna sérstaklega, þar sem fjárfestingar í húsnæði og innviðum þurfa að vera í jafnvægi við daglegt skólastarf.

Það þarf meira en hús til að reka skóla
Mynd: David Hitchcock / Pexels

Með nýsamþykktri fjármálaáætlun til ársins 2031 er næsta skref undirbúningur fjárlaga. Í því samhengi er mikilvægt að gefa framhaldsskólunum gaum og skoða sérstaklega hvað rennur til húsnæðis og innviða annars vegar, og til daglegs skólastarfs hins vegar.

Fjárfestingar í húsnæði framhaldsskóla eru jákvæðar og nauðsynlegar. Sérstaklega þarf að bæta aðstöðu til verk-, starfs-, iðn- og tæknináms svo skólarnir geti sinnt því sem skyldi. Þessi þörf er augljós og þarf að mæta henni til að tryggja gæði menntunar á þessum sviðum.

→ Lesa upprunaleg grein á Eyjafréttir

Heimild: Eyjafréttir

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →