Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót
Borgarstjóri Reykjavíkur telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg fyrr en framkvæmdum við núverandi gatnamót sé lokið.
Borgarstjóri Reykjavíkur telur að leyfa þurfi framkvæmdum að klárast við gatnamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar áður en dæma megi um það hvort ráðast þurfi í endurskipulagningu svæðisins og þá mögulega gerð nýrra mislægra gatnamóta.
Undanfarna daga hefur verið fjallað um umferðartafir við ný ljósastýrð gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar sem voru opnuð fyrr í mánuðinum. Þar hafði Vegagerðin upprunalega áformað að reisa fullbúin mislæg gatnamót en var að lokum vikið frá því og ljósastýrð gatnamót gerð í staðinn að kröfu Reykjavíkurborgar.
Heimild: mbl.is