Takmarkað aðgengi að P2 bílastæðum á KEF á mánudaginn vegna malbikunar
Aðgengi að P2 bílastæðum við komu megin á Keflavíkurflugvelli verður takmarkað mánudaginn 1. júní vegna malbikunarframkvæmda. Verkefninu er skipt í tvo fasa þar sem bílastæði fyrir komufarþega verður minnkað meðan á framkvæmdum stendur. Fyrir hádegi
Aðgengi að P2 bílastæðum við komu megin á Keflavíkurflugvelli verður takmarkað mánudaginn 1. júní vegna malbikunarframkvæmda. Verkefninu er skipt í tvo fasa þar sem bílastæði fyrir komufarþega verður minnkað meðan á framkvæmdum stendur. Fyrir hádegi verður vestari hluti stæðisins malbikaður og verður þá aðgengi að bílastæðum á austari hluta. Gangandi farþegum verður stýrt yfir á göngustíg á efra svæði P2. Eftir hádegi verða græni og guli hlutinn malbikaðir. Vegatálmar verða settir upp til að afmarka vinnusvæði og umferð gangandi og akandi fólks verður stýrt á P2. Áætlað er að mála og merkja bílastæðið síðar í sumar. Bent er á að hægt er að nota P1 bílastæðið brottfarar megin við flugstöðina gjaldfrjáls í 15 mínútur innan sólarhrings til að sækja farþega. Framkvæmdirnar eru liður í að bæta innviði og þjónustu í og við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir
Heimild: Víkurfréttir