Þétting byggðar
Þrefalt fleiri á móti þéttingu en hlynntir henni
Ný viðhorfskönnun fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sýnir að 60% landsmanna eru andvíg þéttingu byggðar í sínu nærumhverfi, á meðan aðeins 22% eru henni fylgjandi. Niðurstöðurnar sýna jafnframt afgerandi kröfu um fjölda bílastæða við heimili fólks. Afstaðan til þéttingar er mjög breytileg eftir því hvar fólk býr og hvernig það ferðast.