Svifryk
Heilbrigðissamtök krefjast harðra aðgerða gegn svifryki fyrir kosningar
--- Breiðfylking heilbrigðissamtaka, þar á meðal Lungnasamtökin og Hjartaheill, hefur sent framboðum til sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri ákall um að setja aðgerðir gegn svifryksmengun í forgang fyrir komandi kosningar. Samtökin leggja áherslu á að góð loftgæði séu brýn, sérstaklega fyrir börn, aldraða og þá sem glíma við öndunar- eða