Ísland
Vesturlandsvegi við Esjumela lokað til norðurs í kvöld
Vegagerðin hefur veitt heimild fyrir malbikunarframkvæmdum á Vesturlandsvegi við Esjumela, sem hefjast að kvöldi sunnudagsins 31. maí og standa fram á nótt, ef veður leyfir. Áætlað er að fræsa og/eða malbika 670 metra langan kafla á Vesturlandsvegi.