Framkvæmdir
RARIK leggur 16 km háspennustreng frá Laugarbakka til Víðigerðis
Raforkufyrirtækið RARIK hefst handa við umfangsmiklar framkvæmdir í Húnaþingi sem miða að því að auka afhendingargetu og afhendingaröryggi í landshlutanum og stuðla að orkuskiptum. Verkið felst í lagningu 33 kV háspennustrengjar á um 16 km leið frá Laugarbakka til Víðigerðis. Á flestum stöðum verður strengurinn lagður neðanjarðar en við Laugarbakka