opinberar framkvæmdir
19,3 milljarða mannvirki í Vogabyggð: Hönnunarvinna hefst
Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur samþykkti á aukafundi í gær að veita heimild til að verja 500 milljónum króna í innkaup vegna hönnunar og undirbúnings fyrir nýtt mannvirki í Vogabyggð. Mannvirkið, sem hefur verið nefnt Fleyvangur-Skólabrú, er ætlað að hýsa grunnskóla, leikskóla, frístundaheimili, félagsmiðstöð og íþróttahús. Áætlaður heildarkostnaður er um 15 milljarðar