Kirkjugarðar
Nýrri líkbrennslu stefnt í gagnið í lok 2027: Lokað fyrir útboð á nýjum ofnum
Útboði Kirkjugarða Reykjavíkur fyrir nýja líkbrennsluofna lauk í maí síðastliðnum og bárust fjögur tilboð, öll frá erlendum aðilum. Stefnt er að opnun nýrrar líkbrennslu í Grafarholti í lok árs 2027, en framleiðsla ofnanna er áætluð níu til tíu mánuði. Kári Aðalsteinsson, sviðsstjóri fasteigna hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur, staðfestir þetta og segir