Veitur
Veitur bora sjö nýjar heitavatnsholur í Laugarnesi
Veitur hyggjast bora sjö nýjar vinnsluholur í Laugarnesi í Reykjavík í leit að heitu vatni. Framkvæmdirnar eru liður í því að tryggja áframhaldandi heitavatnsöryggi höfuðborgarsvæðisins en Laugarnesið er eitt af helstu lághitavinnslusvæðum borgarinnar. Fyrirhugað er að holurnar verði staðsettar á þremur stöðum innan Laugarnesins. Fimm þeirra munu rísa við Engjateig,