Vogabyggð
Vogabyggð heldur áfram að þróast: Ný íbúðabyggð rís á grunni verslunar- og þjónustuhúsnæðis
Uppbygging Vogabyggðar við Elliðaárósa heldur áfram af fullum krafti, en hverfið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Iðnaðarhúsnæði og verkstæði hafa smám saman vikið fyrir íbúðabyggð, og nú þegar eru 890 íbúðir í hverfinu. Þeim á eftir að fjölga enn frekar þar sem nokkrar lóðir bíða enn uppbyggingar. Umhverfis-