Ísland
Byggingarleyfi fyrir 241,2 m² tvíbýlishús á Súlukletti 1 grenndarkynnt
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar hefur samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir tvíbýlishúsi á Súlukletti 1. Einnig var samþykkt að stofna nýjar lóðir úr Dvergholti 8 og sameina stóra landspildu við Galtarholt 3.