Lóðaleigusamningar
Fyrirtæki á Ártúnshöfða kalla eftir skýrleika í lóðamálum
Framtíð um sextíu fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða er í óvissu vegna útrunninna eða yfirvofandi útrunninna lóðaleigusamninga við Reykjavíkurborg. Talsmenn fyrirtækjanna lýsa yfir miklum áhyggjum af stöðunni og segja gríðarlega hagsmuni og fjölda starfa í húfi. Þeir funduðu í dag með frambjóðendum í borgarstjórnarkosningum til að ræða málið, en frambjóðendur