Syntholene opnar tilraunaverksmiðju á Húsavík

Bandaríska nýsköpunarfyrirtækið Syntholene Energy Corp. hefur opnað tilraunaverksmiðju á Húsavík sem nýtir jarðvarma til vetnisframleiðslu. Markmiðið er að prófa nýja tækni sem gæti lækkað kostnað og orkunotkun við framleiðslu á vistvænu eldsneyti.

Syntholene opnar tilraunaverksmiðju á Húsavík
Mynd: Gene Samit / other / Pexels

Bandaríska nýsköpunarfyrirtækið Syntholene Energy Corp. hefur hafið rekstur tilraunaverksmiðju sinnar á Húsavík. Verksmiðjan, sem var byggð upp á aðeins 69 dögum á lóð Orkuveitu Húsavíkur, er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum sem nýtir jarðvarma beint í framleiðslu á vetni með háhita rafgreiningu (SOEC). Vetni er lykilhráefni í framleiðslu á vistvænu eldsneyti.

Tilgangur verkefnisins er að prófa og sannreyna nýja tækni sem gæti lækkað kostnað og orkunotkun við framleiðslu á tilbúnu eldsneyti. Á næstu mánuðum munu fara fram ítarlegar prófanir þar sem safnað verður rekstrargögnum og árangur kerfisins metinn. Fyrstu niðurstöður úr mælingum eru væntanlegar síðar á árinu.

Ef tæknin reynist vel gæti hún lagt grunn að framleiðslu samkeppnishæfs, kolefnishlutlauss eldsneytis á iðnaðarskala í framtíðinni. Meðal annars er horft til Bakka í því tilliti.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Norðurþing

Heimild: Norðurþing

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →