Svona mun Þjóðarhöllin líta út

Ný og glæsileg Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki, er nú komin á teikniborðið. Íslenskir aðalverktakar hf. hafa verið valdir til hönnunar og byggingar mannvirkisins í Laugardal.

Svona mun Þjóðarhöllin líta út
Mynd: William Gevorg Urban / Pexels

Ný og glæsileg Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki sem mætir kröfum nútímans, er nú komin á teikniborðið. Mannvirkið mun bjóða upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir landslið, íþróttafélög og almenning til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru.

Þjóðarhöll ehf., sem starfar fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar, hefur valið tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. í hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal. Auglýst var eftir teymum til að taka þátt í verkefninu.

→ Lesa upprunaleg grein á Tígull

Heimild: Tígull

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →