Strandvegur 63 - kynning á vinnslustigi

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á 1627. fundi sínum þann 3. júní að kynna á vinnslustigi tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Vestmannaeyja, 2. áfanga, vegna aukinna byggingarheimilda við Strandveg 63. Á gildandi deiliskipulagi er gert

Strandvegur 63 - kynning á vinnslustigi
Ljósmynd: Mélanie Mélasse / Pexels

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á 1627. fundi sínum þann 3. júní að kynna á vinnslustigi tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Vestmannaeyja, 2. áfanga, vegna aukinna byggingarheimilda við Strandveg 63. Á gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir stækkun byggingarreits á lóðinni til austurs. Vinnslutillaga að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir að húsnæði við Strandveg 63 geti verið allt að fjórar hæðir í stað tveggja hæða. Gert er ráð fyrir að fjórða hæð sé inndregin að hluta og fyrir að uppbrot sé á norður- og norðvesturhliðum hússins. Skilmálar eru fyrir atvinnustarfsemi á jarðhæð en á annarri til fjórðu hæð geta verið allt að sex íbúðir. Opið hús verður hjá skipulagsfulltrúa dagana 15.-17. júní milli klukkan 10:00 og 12:00. Einnig er hægt að bóka tíma samkvæmt samkomulagi. Gögn vegna málsins má finna á Skipulagsgátt HMS, mál nr. 728/2026, og á útprentuðu formi í afgreiðslu Ráðhúss. Umsagnir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt HMS og er umsagnarfrestur til og með 29. júní 2026.

→ Lesa upprunaleg frétt á Vestmannaeyjabær

Heimild: Vestmannaeyjabær

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →