Vel gengur að tengja bita í Ölfusárbrú
Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú ganga vel og er vinna við uppstillingu fyrstu stálbitanna í fullum gangi. Fyrstu stálbitarnir komu til landsins í apríl og er von á næsta skipi með stálbitum seinnipartinn í júní. Þegar það skip hefur lagt að í Þorláks
Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú ganga vel og er vinna við uppstillingu fyrstu stálbitanna í fullum gangi. Fyrstu stálbitarnir komu til landsins í apríl og er von á næsta skipi með stálbitum seinnipartinn í júní. Þegar það skip hefur lagt að í Þorlákshöfn verða allir stálbitar brúarinnar komnir til landsins, en þeir eru framleiddir í verksmiðjum Norvik í Póllandi.
Byrjað er að rafsjóða samtengingar bitanna og er einnig unnið að því að koma lagnakerfi í brúargrindina. Í brúna verða settar lagnir veitustofnana fyrir heitt og kalt vatn, háspennustrengi og ljósleiðara. Gengið verður frá öllum lögnum í brúargrindina áður en hún verður færð yfir ána. Starfsmönnum við verkið hefur fjölgað vegna þessara verkþátta og eru nú um 60 starfsmenn á framkvæmdasvæðinu.
Vinna við jarðvegsskipti og lagnaskurði í vegstæðinu austan við Ölfusá er komin vel á veg. Áætlað er að hefja fljótlega útlögn styrktar- og burðarlaga undir malbik. Lagnakerfið í brúargrindinni mun hýsa mikilvægar veitulagnir, þar á meðal fyrir heitt og kalt vatn, háspennu og ljósleiðara.
→ Lesa upprunaleg frétt á Sunnlenska
Heimild: Sunnlenska