Reykjanesbær gerir alvarlegar athugasemdir við risavaxinn reykháf í Bergvík
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur gert alvarlegar athugasemdir við vinnslutillögu Suðurnesjabæjar að nýju aðal- og deiliskipulagi fyrir Bergvík. Uppbyggingin er hluti af mótun K64 hringrásariðngarðsins í Helguvík og Bergvík. Ráðið lýsir
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur gert alvarlegar athugasemdir við vinnslutillögu Suðurnesjabæjar að nýju aðal- og deiliskipulagi fyrir Bergvík. Uppbyggingin er hluti af mótun K64 hringrásariðngarðsins í Helguvík og Bergvík. Ráðið lýsir yfir þungum áhyggjum af sjónrænum áhrifum fyrirhugaðra mannvirkja og gerir ríkar kröfur um umhverfisvarnir.
Sérstaklega er gerð athugasemd við áætlaðan reykháf sem gæti náð allt að 150 metra hæð yfir sjávarmáli. Ráðið telur að slíkt mannvirki myndi verða helsta kennileiti Reykjanessins, sem því hugnast ekki.
Ráðið leggur áherslu á að iðnaðaruppbygging á svæðinu verði að samræmast hagsmunum íbúabyggðar í Reykjanesbæ. Krafa er gerð um að starfsemin uppfylli ströngustu skilyrði um bestu aðgengilegu tækni (BAT) og fylgi lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, til að tryggja íbúum heilnæm lífsskilyrði og ómengað umhverfi.
Einnig kallar ráðið eftir formlegu samtali og samvinnu milli sveitarfélaganna tveggja um fráveitumál á skipulagssvæðinu og vegtengingar milli Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar.
→ Lesa upprunaleg frétt á Víkurfréttir
Heimild: Víkurfréttir