Fyrsta stefnan um gönguvæna borg

Reykjavíkurborg hefur kynnt fyrstu heildstæðu stefnu sína um gönguvæna borg, „Gönguvæn Reykjavík 2036“, ásamt aðgerðaáætlun til ársins 2031. Markmið stefnunnar er að gera ferðir fótgangandi að öruggum, aðgengilegum og eftirsóknarverðum valkosti fyrir

Fyrsta stefnan um gönguvæna borg
Ljósmynd: Jaymantri / Pexels

Reykjavíkurborg hefur kynnt fyrstu heildstæðu stefnu sína um gönguvæna borg, „Gönguvæn Reykjavík 2036“, ásamt aðgerðaáætlun til ársins 2031. Markmið stefnunnar er að gera ferðir fótgangandi að öruggum, aðgengilegum og eftirsóknarverðum valkosti fyrir alla.

Ferðavenjukannanir sýna að áhugi borgarbúa á göngu er meiri en raunveruleg notkun. Um 25% segjast vilja ganga til vinnu en aðeins 13% gera það. Í stefnunni er bent á að hlutfall bílanotkunar í Reykjavík sé hátt í samanburði við aðrar evrópskar höfuðborgir. Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 setur markmið um að hlutfall gangandi í öllum ferðum verði að lágmarki 22% árið 2030 og að virkir ferðamátar verði yfir 50% ferða árið 2040.

Stefna um gönguvæna Reykjavík byggir á þremur áherslum: virkni og tengingum, öryggi og aðgengi. Lögð er áhersla á að byggja upp samfellt net gönguleiða sem tengir saman heimili, skóla, vinnustaði, þjónustu og almenningssamgöngur.

→ Lesa upprunaleg frétt á Reykjavíkurborg

Heimild: Reykjavíkurborg

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →