Miklar framkvæmdir standa yfir á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði
Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði með það að markmiði að bæta frárennsli og koma í veg fyrir vatnssöfnun. Verkefnið er unnið í samstarfi við Landmótun og felst það meðal annars í því að stýra yfirborðsvatni á ákveðn
Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði með það að markmiði að bæta frárennsli og koma í veg fyrir vatnssöfnun. Verkefnið er unnið í samstarfi við Landmótun og felst það meðal annars í því að stýra yfirborðsvatni á ákveðna staði þar sem hægt er að safna því saman og veita áfram í tjörnina við svæðið. Til að koma í veg fyrir að vatn flæði í átt að sundlauginni er verið að hækka land við aðkomustíg að tjaldsvæðinu og gefa landinu halla í átt að vatnssöfnunarsvæði nær götunni. Þar taka lagnir við vatninu og leiða það annað hvort út í tjörnina eða tengja við lagnakerfi í götu þar sem það er mögulegt.
Á innsta hluta tjaldsvæðisins, næst brekkunni, er yfirborðsvatni beint að vegfláa þar sem það safnast í niðurföll og fer þaðan í lagnir sem liggja út í tjörnina. Þetta kerfi vinnur jafnframt með drenlögnum sem koma við rætur brekkunnar. Einnig verður öðru vatni á svæðinu safnað í sérstakt gróðursvæði með yfirfallsrist í miðju tjaldsvæðisins og þaðan veitt í lögn sem liggur út í tjörnina. Tjaldsvæðið er áfram opið gestum meðan á verkinu stendur. Verktakafyrirtækið Smárinn ehf. sér um framkvæmdina.
→ Lesa upprunaleg frétt á Trölli
Heimild: Trölli