Slökkvistarfi lokið eftir bruna við Túngötu á Siglufirði
Slökkvistarfi lauk klukkan 16:27 í dag eftir bruna í húsi við Túngötu á Siglufirði. Tilkynning um brunann barst klukkan 14:47, en Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar, sagði viðbragðstíma hafa verið góðan. Um 20 slökkviliðsmenn tóku
Slökkvistarfi lauk klukkan 16:27 í dag eftir bruna í húsi við Túngötu á Siglufirði. Tilkynning um brunann barst klukkan 14:47, en Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar, sagði viðbragðstíma hafa verið góðan.
Um 20 slökkviliðsmenn tóku þátt í aðgerðum á vettvangi. Enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp og ekki er búið í næsta húsi. Lögregla hefur tekið við vettvanginum og mun vakta svæðið þar til rannsókn á eldsupptökum getur farið fram. Ekki hefur verið greint frá orsök brunans.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Trölli
Heimild: Trölli