Lokafrágangur hafinn í Hrafnagilshverfi – búast má við truflun á umferð
Vinna við lokafrágang meðfram Hrafnatröð í Hrafnagilshverfi er hafin og stendur fram í miðjan júní. Framkvæmdirnar fela í sér lagningu hitaveitu, kalds vatns, rafstrengja og samskiptalagna. Búast má við umferðartöfum, þrengingum og hjáleiðum á framkv
Vinna við lokafrágang meðfram Hrafnatröð í Hrafnagilshverfi er hafin og stendur fram í miðjan júní. Framkvæmdirnar fela í sér lagningu hitaveitu, kalds vatns, rafstrengja og samskiptalagna. Búast má við umferðartöfum, þrengingum og hjáleiðum á framkvæmdatímanum.
Framkvæmdunum næstu þrjár vikur verður skipt í tvo áfanga. Fyrri áfanginn nær frá gönguþverun Hrafnatraðar við Hrafnagilsskóla að sunnan og norður fyrir syðri gatnamót Bakkatraðar. Á þessu tímabili má búast við þrengingum og norður innkeyrsla Laugartraðar verður lokuð í nokkra daga.
Í beinu framhaldi hefst annar áfangi sem nær inn á tengiveginn við Eyjafjarðarbraut vestri. Vegurinn á því svæði verður lokaður almennri umferð og hjáleið verður um Bakkatröð.
Að framkvæmdum loknum verða stígar malbikaðir auk gatnakerfis og stíga í Hólmatröð. Sár sem varð eftir við að fjarlægja gömlu Ártröðina verður lokað og svæðið grætt upp. Einnig á eftir að setja hækkanir og gönguþveranir á Hrafnatröð til móts við Bakkatröð og nýja leikskólann, sem mun valda minniháttar truflunum.
→ Lesa upprunaleg frétt á Eyjafjarðarsveit
Heimild: Eyjafjarðarsveit