Velheppnaður íbúafundur um þróun miðbæjar Seltjarnarness

Fjölmennur íbúafundur var haldinn í Gallerí Gróttu í gærkvöldi þar sem rætt var um fyrirhugað skipulagsferli á miðbæjarreitunum við Eiðistorg og Austurströnd 7, oft nefndir „Hagkaupsreiturinn“ og „Bensínstöðvarreiturinn“. Fundurinn, sem Skipulags- og

Velheppnaður íbúafundur um þróun miðbæjar Seltjarnarness
Mynd: Pok Rie / Pexels

Fjölmennur íbúafundur var haldinn í Gallerí Gróttu í gærkvöldi þar sem rætt var um fyrirhugað skipulagsferli á miðbæjarreitunum við Eiðistorg og Austurströnd 7, oft nefndir „Hagkaupsreiturinn“ og „Bensínstöðvarreiturinn“. Fundurinn, sem Skipulags- og umferðarnefnd Seltjarnarness stóð fyrir, þótti vel heppnaður, áhugaverður og jákvæður.

Svana Helen Björnsdóttir, formaður Skipulags- og umferðarnefndar, stýrði fundinum og kynnti störf nefndarinnar. Halldóra Bragadóttir og Helgi B. Thóroddsen frá Kanon arkitektum héldu kynningu á fyrirkomulagi skipulagsferlis í slíkum verkefnum. Lögð var áhersla á að engar ákvarðanir hefðu verið teknar á þessum tímapunkti, heldur væri tilgangur fundarins að upplýsa bæjarbúa um uppbyggingarmöguleika, opna umræðu og kalla eftir hugmyndum og ábendingum.

Góður rómur var gerður að fundinum og margar fyrirspurnir og ábendingar komu fram, sem allar voru skráðar niður til frekari vinnslu. Skipulags- og umferðarnefnd mun afhenda öll gögn og upplýsingar til nýrrar nefndar eftir kosningar, sem mun þróa málin áfram í samráði við íbúa. Fundargestir voru sammála um mikilvægi þess að vinna að uppbyggingu miðbæjarreitanna á næstu misserum.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Seltjarnarnesbær

Heimild: Seltjarnarnesbær

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →