Stefnt að fleiri local vörum í nýju upplýsingamiðstöðinni á Siglufirði
Ný upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn hefur verið opnuð við tjaldsvæðið í miðbæ Siglufjarðar, þar sem nýtt gámahýsi var reist í byrjun maí. Verkefnið er á vegum fyrirtækisins Evanger, sem rekur meðal annars tjaldsvæðið á Siglufirði og rafhlaupahjólaþj
Ný upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn hefur verið opnuð við tjaldsvæðið í miðbæ Siglufjarðar, þar sem nýtt gámahýsi var reist í byrjun maí. Verkefnið er á vegum fyrirtækisins Evanger, sem rekur meðal annars tjaldsvæðið á Siglufirði og rafhlaupahjólaþjónustuna Hopp í Fjallabyggð. Jón K. Ólafsson, einn eigenda Evanger, segir markmiðið vera að efla upplýsingagjöf og bæta þjónustu við ferðamenn og heimamenn yfir sumartímann.
Auk upplýsingamiðstöðvarinnar á Siglufirði hefur einnig verið opnuð ný upplýsingamiðstöð í Pálshúsi í Ólafsfirði. Í báðum miðstöðvunum er að finna snertiskjái með vefsíðu sem Evanger hefur hannað, auk hefðbundinna bæklinga. Þorgeir Bjarnason, einnig þekktur sem Doddi málari, sá um málningarvinnu á upplýsingamiðstöðinni á Siglufirði ásamt starfsmönnum L7 verktaka.
Í upplýsingamiðstöðvunum verður hægt að nálgast upplýsingar um gistingu, veitingastaði, afþreyingu og ýmsa þjónustu í Fjallabyggð. Nýr snjall sjálfsali með yfir 60 vörum hefur verið tekinn í notkun á Siglufirði, en hugmyndin að honum kviknaði eftir ítrekaðar óskir ferðamanna um aukinn aðgang að vörum og minjagripum. Jón segir að stefnt sé að því að fá fleiri staðbundnar vörur í sjálfsalann, líkt og Síldardósina sem Baldi bakari framleiddi í samstarfi við Síldarminjasafnið.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Trölli
Heimild: Trölli