Bríet í samstarf við Skagafjörð – uppbygging nýrra leigueigna vítt og breytt um sveitarfélagið
Leigufélagið Bríet og Sveitarfélagið Skagafjörður hafa gert samstarfssamning sem felur í sér að Bríet tekur við íbúðum í eigu sveitarfélagsins. Jafnframt eignast Skagafjörður stærsta eignarhlut allra sveitarfélaga í Bríeti. Samningurinn tryggir óbrey
Leigufélagið Bríet og Sveitarfélagið Skagafjörður hafa gert samstarfssamning sem felur í sér að Bríet tekur við íbúðum í eigu sveitarfélagsins. Jafnframt eignast Skagafjörður stærsta eignarhlut allra sveitarfélaga í Bríeti. Samningurinn tryggir óbreytta stöðu leigjenda, en réttindi og skyldur leigusamninga færast til Bríetar. Skagafjörður mun halda forgangsrétti til að tilnefna leigjendur í þær íbúðir sem falla undir samninginn.
Bríet, sem er í eigu ríkis og sveitarfélaga, hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigðum og hagkvæmum leigumarkaði á landsbyggðinni með öruggum og fjölbreyttum húsnæðiskostum í langtímaleigu. Félagið er rekið án hagnaðarsjónarmiða og stefnir að sjálfbærum rekstri. Samstarfið við Skagafjörð mun leiða til uppbyggingar virks leigumarkaðar í sveitarfélaginu.
Áætlað er að Bríet hefji nýbyggingar leiguíbúða á Hofsósi og Sauðárkróki árið 2026. Í framhaldi af því er stefnt að uppbyggingu leiguhúsnæðis víðar í Skagafirði, byggt á greiningu á þörf á hverjum stað. Bríet á nú um 500 íbúðir víðsvegar um landið og hefur ráðist í fjölda nýbygginga á landsbyggðinni, meðal annars í Fjarðabyggð, Dalabyggð og Múlaþingi.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sveitarfélagið Skagafjörður
Heimild: Sveitarfélagið Skagafjörður