Tunglskot eða öllu heldur jarðskot

Samstarfssamningur vegna næsta áfanga íslenska djúpborunarverkefnisins (IDDP-3) var undirritaður þann 8. maí síðastliðinn af fulltrúum Orkuveitunnar, HS Orku, Landsvirkjunar og stjórnvalda. Verkefnið er hluti af djúpnýtingarvegferð Orkuveitunnar, sem

Tunglskot eða öllu heldur jarðskot
Mynd: Jiri Ikonomidis / Pexels

Samstarfssamningur vegna næsta áfanga íslenska djúpborunarverkefnisins (IDDP-3) var undirritaður þann 8. maí síðastliðinn af fulltrúum Orkuveitunnar, HS Orku, Landsvirkjunar og stjórnvalda. Verkefnið er hluti af djúpnýtingarvegferð Orkuveitunnar, sem miðar að því að þróa nýjar leiðir til að nýta ofurheitan jarðhita úr dýpri og heitari jarðlögum en nýtt eru í dag.

Undirritunin markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun verkefnisins, en rannsóknir á nýtingu ofurheits jarðhita hafa staðið yfir í nær tvo áratugi. Þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að orkan er til staðar, felst næsta skref í að leysa tæknilegar áskoranir sem fylgja nýtingunni. Takist að þróa tæknina með góðum árangri gæti það haft veruleg áhrif á nýtingu endurnýjanlegrar orku til frekari verðmætasköpunar.

Áætlað er að bora rannsóknar- og djúpborunarholuna IDDP-3 á Nesjavöllum í Grímsnes- og Grafningshreppi í lok árs 2026. Markmið holunnar er að rannsaka möguleika á nýtingu ofurheits jarðhita við meira en 400°C hita og á allt að 4–5 km dýpi. Árið 2027 er síðan ráðgert að bora sérstaka niðurdælingarholu til að rannsaka niðurdælingu vatns í ofurheit jarðlög og styðja þannig við áframhaldandi þróun djúpnýtingar jarðhita. Verkefnið hefur vakið athygli bæði erlendis og innan fræðasamfélagsins, enda er markmið þess að færa jarðhitanýtingu á nýtt tæknistig.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Grímnes- og Grafningshreppur

Heimild: Grímnes- og Grafningshreppur

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →