Sveitarfélögin saman um uppbyggingu sérskólaúrræða

Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í dag, 13. maí 2026, þar sem Hafnarfjarðarkaupstaður tekur þátt ásamt fimm öðrum sveitarfélögum og tveimur ráðuneytum. Að viljayfirlýsingunni standa Reykjav

Sveitarfélögin saman um uppbyggingu sérskólaúrræða
Mynd: Tanish Mehta / Pexels

Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í dag, 13. maí 2026, þar sem Hafnarfjarðarkaupstaður tekur þátt ásamt fimm öðrum sveitarfélögum og tveimur ráðuneytum. Að viljayfirlýsingunni standa Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær, auk mennta- og barnamálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins.

Samstarfið byggir á greiningu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) um fýsileika aukins samstarfs sveitarfélaganna og ríkisins um sérskólaúrræði. Niðurstöður greiningarinnar sýna að samstarfið er bæði raunhæft og fýsilegt, og að með samstilltu átaki sé hægt að byggja upp öflugri, sjálfbærari og fjölbreyttari úrræði fyrir börn með ólíkar stuðningsþarfir.

Markmið samstarfsins er að tryggja að börn sem þurfa sérskólaúrræði fái þjónustu sem tekur mið af þörfum þeirra og styður við farsæld þeirra, virkni og menntun. Í samstarfinu verður horft til uppbyggingar langtíma sérskólaúrræða fyrir börn með langtímasérskólaþarfir, fjölbreyttra skammtímaúrræða og einnig til eflingar sérdeilda innan almennra grunnskóla.

Samkvæmt greiningunni er áætlað að um 360 börn á grunnskólaaldri á höfuðborgarsvæðinu uppfylli skilyrði fyrir sérskólaúrræði á hverjum tíma, eða um 1,0-1,3% af heildarfjölda barna. Í dag eru rúmlega 200 börn í sérskólum og um 160 börn í öðrum sérúrræðum innan grunnskóla.

Skipaður verður sameiginlegur stýrihópur sveitarfélaganna og mennta- og barnamálaráðuneytisins sem mun móta tillögur að framtíðarskipan úrræðanna. Þetta felur í sér tillögur um uppbyggingu nýrra sérskóla, þróun skammtímaúrræða og eflingu sérdeilda innan almennra grunnskóla. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum fyrir lok ársins.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Hafnarfjarðarkaupstaður

Heimild: Hafnarfjarðarkaupstaður

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →