Umhverfisvaktin 11. maí - 17 maí
Framkvæmdir við nýbyggingu B-álmu Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ munu leiða til lokunar á Norðurtúni og gervigrasfótboltavellinum dagana 12. og 13. maí. Ástæðan er sú að hífa þarf Fíligran-plötur, forsteyptar einingar, á byggingarsvæðið. Bílkrani og l
Framkvæmdir við nýbyggingu B-álmu Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ munu leiða til lokunar á Norðurtúni og gervigrasfótboltavellinum dagana 12. og 13. maí. Ástæðan er sú að hífa þarf Fíligran-plötur, forsteyptar einingar, á byggingarsvæðið. Bílkrani og langur flutningabíll verða staðsettir á Norðurtúni á meðan vinnu stendur. Íbúar við Norðurtún, sem og nemendur og starfsfólk Myllubakkaskóla, eru beðin um að sýna aðgát og gera ráð fyrir tímabundnum truflunum á svæðinu. Reykjanesbær þakkar fyrir skilninginn og biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Umhverfisvaktin verður uppfærð reglulega á vef sveitarfélagsins og hægt er að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Reykjanesbær
Heimild: Reykjanesbær