Skagafjörður nær samkomulagi við íslenska ríkið um innviði og uppbyggingu á Hólum í Hjaltadal
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur undirritað samkomulag við íslenska ríkið um yfirtöku á rekstri innviða og þjónustu á Hólum í Hjaltadal, auk eignarhalds á landi til frekari uppbyggingar. Samkomulagið var undirritað af Sigfúsi Inga Sigfússyni sveitar
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur undirritað samkomulag við íslenska ríkið um yfirtöku á rekstri innviða og þjónustu á Hólum í Hjaltadal, auk eignarhalds á landi til frekari uppbyggingar. Samkomulagið var undirritað af Sigfúsi Inga Sigfússyni sveitarstjóra fyrir hönd Skagafjarðar, og forsætisráðherra og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins, þann 13. maí 2026. Þetta samkomulag er niðurstaða áralangs samtals milli sveitarfélagsins og ríkisins um þéttbýlið á Hólastað.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að rekstur innviða og þjónusta á Hólum verði í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til annarra þéttbýlisstaða í Skagafirði. Samkvæmt samkomulaginu tekur sveitarfélagið yfir rekstur, viðhald og uppbyggingu allra helstu innviða innan afmarkaðs þéttbýlissvæðis á Hólum. Þetta nær til veitukerfa, gatna, lóða og annarrar almennrar umhirðu. Sérstök áhersla er lögð á úrbætur í fráveitumálum, en fyrir liggur að ráðast þarf í umfangsmiklar endurbætur á núverandi kerfi. Skagafjörður skuldbindur sig til að hefja þær framkvæmdir innan eins árs frá undirritun samkomulagsins og ljúka þeim innan fimm ára.
Samkomulagið felur einnig í sér að ríkissjóður afsalar til sveitarfélagsins eignarhaldi á afmörkuðu svæði sem nær til stærsta hluta þéttbýlisins á Hólum, ásamt landi sem ætlað er til frekari þróunar íbúðabyggðar. Þetta skapar aukin tækifæri til uppbyggingar og þróunar byggðar á svæðinu. Ríkissjóður leggur Skagafirði til fyrrgreinda landspildu í þéttbýlinu á Hólum auk 150 milljóna króna eingreiðslu.
Því til viðbótar fær Skagafjörður til eignar 26 hektara landspildu við Nýrækt í Fljótum sem sveitarfélagið hyggst nýta til íbúðauppbyggingar. Undanskildur er sá hluti lands sem fer undir breytta legu Siglufjarðarvegar vegna fyrirhugaðra Fljótaganga. Samkomulagið styrkir grundvöll fyrir áframhaldandi þróun svæðisins sem öflugs og lifandi samfélags innan Skagafjarðar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sveitarfélagið Skagafjörður
Heimild: Sveitarfélagið Skagafjörður