Umferðartafir austan við Selfoss
Malbikunarframkvæmdir standa yfir á Suðurlandsvegi frá Villingaholtsvegi að Þingborg til vesturs í dag, fimmtudaginn 21. maí. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 9 til 21 og verður umferðarstýring á svæðinu á meðan. Um 1.400 metra kafli v
Malbikunarframkvæmdir standa yfir á Suðurlandsvegi frá Villingaholtsvegi að Þingborg til vesturs í dag, fimmtudaginn 21. maí. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 9 til 21 og verður umferðarstýring á svæðinu á meðan.
Um 1.400 metra kafli verður malbikaður. Vegfarendur eru beðnir um að athuga að hliðarvegir verða lokaðir á meðan verið er að malbika fram hjá þeim. Mikilvægt er að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng þar sem menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska
Heimild: Sunnlenska