Nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa

Suðurnesjabær hefur tekið í notkun nýtt og notendavænt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi í samstarfi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), sem er mikilvægt skref í átt að samræmingu og einföldun umsóknar- og útgáfuferlis byggingarleyfa á landsv

Nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa
Mynd: Jiri Ikonomidis / Pexels

Suðurnesjabær hefur tekið í notkun nýtt og notendavænt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi í samstarfi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), sem er mikilvægt skref í átt að samræmingu og einföldun umsóknar- og útgáfuferlis byggingarleyfa á landsvísu. Þetta nýja kerfi, sem er aðgengilegt á byggingarleyfi.hms.is, er ætlað að stuðla að vandaðri mannvirkjagerð og veita betri yfirsýn yfir stöðu uppbyggingar á Íslandi með beinu aðgengi að reglulega uppfærðum gögnum.

Aðgangur að umsóknarkerfinu er aðskilinn fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Fyrirtækisaðgangur krefst innskráningar með skilríkjum og HMS staðfestir umboð og forskráir umsóknir sem sendar eru til sveitarfélagsins. Eigandi og aðalhönnuður þurfa að staðfesta aðkomu sína að framkvæmd með rafrænum skilríkjum áður en umsókn er send byggingarfulltrúa. Prókúruhafi þarf að veita starfsfólki umboð til að fá aðgang að svæði fyrirtækisins og skoða umsóknir á mínum síðum fyrirtækisins á Ísland.is. Hönnuðir og starfsmenn með umboð geta unnið í umsóknum sem fyrirtækið á, og umsóknir birtast öðrum hönnuðum ef þær eru stofnaðar eða staðfestar af hönnuði skráðum á svæði fyrirtækisins.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Suðurnesjabær

Heimild: Suðurnesjabær

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →