Samningur undirritaður um framkvæmdir í Markholti
Mosfellsbær hefur undirritað samning við verktakafyrirtækið Fagurverk ehf. um umfangsmiklar framkvæmdir á veitukerfi Markholts. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í október 2026. Verkið felur í sér endurnýjun á öllum hita-, vatns-, götulýsingar-, rafmagn
Mosfellsbær hefur undirritað samning við verktakafyrirtækið Fagurverk ehf. um umfangsmiklar framkvæmdir á veitukerfi Markholts. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í október 2026. Verkið felur í sér endurnýjun á öllum hita-, vatns-, götulýsingar-, rafmagns- og fráveitulögnum í götunni.
Framkvæmdunum verður skipt upp í tvo áfanga. Fyrri áfanginn nær yfir Markholt 1-9, en sá síðari yfir Markholt 9-24. Íbúar í Markholti hafa verið upplýstir um framkvæmdina og verða upplýsingar um framgang mála uppfærðar reglulega á vef Mosfellsbæjar.
Umræðufundur með íbúum um verkið fer fram fimmtudaginn 28. maí milli klukkan 17 og 18 á skrifstofu Mosfellsbæjar í Kjarna. Þar gefst íbúum tækifæri til að ræða við fulltrúa verksins. Íbúar geta einnig sent inn ábendingar eða fyrirspurnir um framkvæmdina í gegnum ábendingarkerfi Mosfellsbæjar. Mosfellsbær biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda íbúum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Mosfellsbær
Heimild: Mosfellsbær