Fái lóð í Móahverfi fyrir þjónustu við aldraða

Bæjarráð Akureyrar hefur lýst yfir vilja til að veita fyrirtækinu Heilsuvernd vilyrði fyrir lóð við Borgarmóa í hinu nýja Móahverfi, án auglýsingar, til uppbyggingar heilbrigðisþjónustu og þjónustuíbúða fyrir aldraða. Heilsuvernd rekur nú þegar hjúkr

Fái lóð í Móahverfi fyrir þjónustu við aldraða
Mynd: Gezer Amorim / Pexels

Bæjarráð Akureyrar hefur lýst yfir vilja til að veita fyrirtækinu Heilsuvernd vilyrði fyrir lóð við Borgarmóa í hinu nýja Móahverfi, án auglýsingar, til uppbyggingar heilbrigðisþjónustu og þjónustuíbúða fyrir aldraða. Heilsuvernd rekur nú þegar hjúkrunarheimilin Hlíð og Lögmannshlíð á Akureyri, samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands.

Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að Heilsuvernd telur sig ekki geta beðið eftir að nýtt hjúkrunarheimili rísi við Þursaholt, sem gert er ráð fyrir að verði tilbúið árin 2029 eða 2030. Ástæðan er bágborið ástand á álmum 1 og 2 á Hlíð. Móahverfið er staðsett nyrst í bænum og gatan Borgarmói verður í norðausturhorni hverfisins, steinsnar ofan efstu húsa í Síðuhverfi.

Fyrir þessa ákvörðun hafði Heilsuvernd óskað eftir úthlutun lóðar við Þingvallastræti 23 undir heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða í tímabundna dvöl og endurhæfingu, auk þjónustu við þá starfsemi. Skipulagsráð hafnaði þeirri beiðni þar sem lóðin hafði ekki verið auglýst, en fól skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um mögulega staðsetningu fyrir fyrirhugaða þjónustu.

Á fundi skipulagsráðs var aftur fjallað um erindi Heilsuverndar og meirihluti ráðsins lagði til við bæjarráð og bæjarstjórn að gerður yrði samningur við Heilsuvernd um uppbyggingu heilbrigðisþjónustu fyrir eldri borgara. Þetta myndi fela í sér tímabundnar dvalir, endurhæfingu og leiguíbúðir. Í kjölfarið var lagt til að Heilsuvernd fengi vilyrði fyrir lóð við Borgarmóa án auglýsingar.

Í fundargerð skipulagsráðs kemur fram að endanleg úthlutun geti ekki farið fram fyrr en skipulagsbreytingum hefur verið lokið og skrifað hefur verið undir samkomulag um starfsemina. Ráðið leggur jafnframt áherslu á að þrátt fyrir að fyrirhuguð uppbygging verði að meginstefnu ætluð þjónustu og íbúðum fyrir eldri borgara, verði áfram gert ráð fyrir almennri verslunar- og þjónustustarfsemi í hluta jarðhæðar húsnæðisins. Jón Hjaltason, óflokksbundinn fulltrúi, sat hjá við afgreiðslu málsins og óskaði bókað að hann vildi ekki vera þröskuldur í vegi framkvæmda.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net

Heimild: Akureyri.net

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →