16 tillögur bárust í hönnunarsamkeppni um Akureyrarvöll

Alls bárust 16 tillögur í opna framkvæmdasamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis sem Akureyrarbær efndi til í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild og eru því 15 gildar tillögur nú til umfjöllunar hjá dómnefnd. T

16 tillögur bárust í hönnunarsamkeppni um Akureyrarvöll
Mynd: Braggi.is

Alls bárust 16 tillögur í opna framkvæmdasamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis sem Akureyrarbær efndi til í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild og eru því 15 gildar tillögur nú til umfjöllunar hjá dómnefnd.

Tilgangur samkeppninnar var að leita að hönnunarhópi og fá fram raunhæfa tillögu að miðbæjarumhverfi sem væri eftirsóknarvert til búsetu og suðupottur fyrir margvíslega starfsemi í hjarta Akureyrarbæjar. Stefnt er að því að tilkynna um niðurstöðu samkeppninnar og afhenda verðlaun við athöfn í Hofi þriðjudaginn 26. maí klukkan 17.00.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyrarbær

Heimild: Akureyrarbær

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →